Hvalarannsóknir
Hvalaskoðun er lykill að rannsóknunum
Allt síðan 1998 hefur Hvalasafnið á Húsavík lagt stund á sjálfstæðar rannsóknir til að auk þekkingu á hvölum í Skjálfanda. Viðfangsefni rannsóknanna er ljósmyndagreining, köfunartími og búsvæði. Starfsfólk safnsins hefur aðstöðu um borð í hvalaskoðunarbátum Norðursiglingar til að safna gögnum um hvali og höfrunga sem sjást í hvalaskoðunarferðum. Daglega fer starfsmaður safnsins með hvalaskoðunarbát og skráir upplýsingar um þær mismunandi tegundir sem sjást í flóanum. Fjöldi, staðsetning og hegðun dýranna skipta rannsakendur miklu máli. Rannsóknirnar nú beinast að algengustu tegundunum í Skjálfanda; hrefnum, hnúfubökum og blettahnýðum. Annað slagið gefst tækifæri á að kanna aðrar tegundir svo sem steypireyði.
Notið tenglana hér til vinstri til að fræðast um rannsóknir safnsins.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









