Ljósmyndagreining
Ljósmyndagreining er mikilvæg aðferð
Ljósmyndagreining hefur skipað sér sess sem mikilvæg aðferð við rannsóknir á hegðun hvala, vistfræði og mat á stofnstærð. Við beitingu þessarar aðferðar er grundvallar atriði að mynda þá hluta sem einkenna tegundir og einstaklinga svo sem stærð og lögun horns (bakugga), litamynstur og lögun sporðblöðku, lit skrokks, ör, sigg eða ásætur. Við greiningu á myndunum er megináhersla lögð á frábrigði innan einstakra tegunda svo sem óvenjulega lögun, skorur, hök og áverka.
Þessi einkenni eru gagnleg til að bera aftur kennsl á einstaklinga sem þegar eru á skrá. Myndirnar eru færðar í spjaldskrá og eru grunnur frekari rannsókna.
Vilt þú taka þátt í rannsókninni okkar?
Hvalasafnið hvetur alla sem farið hafa í hvalaskoðun við Ísland til að senda okkur myndir af hnúfubökum, hrefnum og blettahnýðum. Myndir sem sýna horn eða sporðblöðku eru sérstaklega gagnlegar til að greina einstaklinga. Til að myndirnar komi að gagni við rannsóknina þurfa að fylgja með upplýsingar um hvar og hvenær myndin var tekin (dagsetning og nákvæm staðsetning). Það má senda myndirnar á netfangið elke@whalemuseum.is eða á eftirfarandi heimilisfang:
Hvalasafnið á Húsavík
Hafnarstétt 1
640 Húsavík
Við erum þakklát fyrir hverskonar stuðning við rannsóknir okkar.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









