Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Hvalaskoðun

 Upphaf hvalaskoðunar

whale watch hupmiHvalaskoðun með leiðsögn var fyrst boðin  á Íslandi árið 1995 og hefur greinin vaxið stöðugt síðan. Hvalaskoðunarferð  er nú einn  af hápunktum á ferð margra sem heimsækja landið og nýtur hvalaskoðun vaxandi vinsælda innlendra ferðamanna. Flest hvalaskoðunar-fyrirtækin eru vestan- og norðanlands enda fjöldi hvala við landið mestur á þeim svæðum.

 

Sumarið er tíminn

Besti tíminn til hvalaskoðunar er júní til ágúst en ferðir eru í boði á öðrum tímum, allvíða apríl til október og ferðir frá Reykjavík eru í boði allan ársins hring.

Aðgát skal höfð 

Fyrirtækjum sem bjóða hvalaskoðun hefur fjölgað ört. Samtök hvalaskoðunarfyrirtækja, "Icewhale" sjá ástæðu til að reyna að hafa áhrif á umgengni við hvalina á sjó og hafa gefið út leiðbeiningar til hvalaskoðunarfyrirtækja þar um. Hvalaskoðunarfyrirtækjunum er samt sem áður í sjálfsvald sett hvort þau fara eftir þessum leiðbeiningum þar sem ekki eru um lagasetningu að ræða.

Umræðan um hvort hvalveiðar og hvalaskoðun geti farið saman er sífellt lifandi. Þegar rætt er um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda er augljóst að hvalaskoðun er ekki nærri eins skaðleg náttúrunni og hvalveiðar. Umræðan hefur verið á efnahagslegum grunni og horft framhjá þeirri staðreynd að flestar hvalategundir eru enn á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Hvalaskoðunarferð þar sem ekki er gætt fagmennsku og virðingar við dýrin er þeim einnig skaðleg.


Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.

31. Mars 2011

Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku

Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.

26. Febrúar 2011

Verðskrá ársins 2011

Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:

Fullorðnir: 1.250 kr.

Börn (6-14 ára): 500 kr.

Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.

Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré