Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Fæða og fæðuleit

 Veiðiaðferðir

krillUndirættbálkar hvala eru tveir, skíðishvalir og tannhvalir. Fæðuval og veiðiaðferðir tannhvala og skíðishvala eru talsvert ólíkar. Skíðishvalir nota skíðin til að sía fæðuna frá sjónum í fishkjaftinum. Tannhvalirnir veiða stærri sjávardýr s.s. fisk, smokkfisk og kolkrabba. Saman taka þessir tveir ættbálkar hvala fæðu úr nær öllum þrepum í fæðukeðju sjávar.

Fæðuöflun skíðishvala 

Skíðishvalir nærast á algengustu og ríkulegustu fæðu í sjónum, dýrasvifi, krabbadýrum og smáfiski. Skíðin eru afkastamikil sía sem skilur bráðina frá því sjónum.baleen feeding Hvalirnir opna kjaftinn upp á gátt, allt að 90°, til að gleypa sjó og átu, loka honum og þvinga sjóinn út milli skíðanna. Fæðuna sem eftir situr skrapa þeir af góm og skíðum með tungunni og kyngja.

Fæðuöflun tannhvala 

Tengsl eru á milli bráðar tannhvala, stærðar hvalanna og hversu margar tennur þeir hafa. Tennurnar eru allar eins, keilulaga og henta til að grípa og slíta en ekki tyggja. Tannhvalir gleypa því bráðina oftast í heilu lagi eða sjúga hana ofan í sig.

Tengsl fæðu og fars hvala 

Tannhvalir éta allan ársins hring og halda sig á svæðum þar sem bráð er alltaf til staðar. Flestar tegundir skíðishvala ferðast um langan veg til að éta og fæðuöflun þeirra  er takmörkuð við 3 til 5 mánuði á ári. Á þeim tíma auka þeir þyngd sína um 40%, spiklagið þykknar og minnkar síðan smátt og smátt það sem eftir lifir ársins. Skíðishvalirnir nærast mjög takmarkað þá sex til níu mánuði sem þeir eru fjarri bestu átsvæðunum. 

hump migration final

            

 

 

Farleiðir stofna Norður Atlantshafs Hnúfubaka.


Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.

31. Mars 2011

Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku

Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.

26. Febrúar 2011

Verðskrá ársins 2011

Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:

Fullorðnir: 1.250 kr.

Börn (6-14 ára): 500 kr.

Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.

Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré