Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Hegðun

Félagsleg tengsl 

Félagsleg tengsl hvala eru mjög breytileg allt frá flóknum samfélögum tannhvala til einlífis skíðishvala þar sem félagsleg grunneining er móðir og kálfur. Sumar tegundir verja allri ævi í vel skipulögðum hópum þar sem allir einstaklingarnir eru skyldir innbyrðis, þeir þróa veiðiaðferðir sem byggjast á þessum langtímatengslum. Snerting virðist notuð til að viðhalda skipan innan hópsins og snerting gegnir mikilvægu hlutverki í mökunarferli flestra tegunda.

lobtailingbreaching hump biology 

Bægslagangur við yfirborð 

Læti við yfirborð svo sem stökk og sláttur með bægslum og sporði hefur verið túlkað sem viðvörunarmerki (merki um hættu), gremja eða að dýrin séu einfaldlega að hrista af sér sníkjudýr. Gagnkvæm aðstoð er enn ein sönnun flókinnar hegðunar. Það er vel þekkt að félagar í hjörðum vernda og aðstoða særð eða deyjandi dýr.


Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.

31. Mars 2011

Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku

Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.

26. Febrúar 2011

Verðskrá ársins 2011

Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:

Fullorðnir: 1.250 kr.

Börn (6-14 ára): 500 kr.

Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.

Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré