Öndun og köfun
Framúrskarandi kafarar
Flest sjávarspendýr kafa lengi og niður á mikið dýpi í leit að fæðu. Einkum eru tannhvalir framúrskarandi kafarar, sumar tegundir þeirra kafa niður á 3.000 m dýpi og eru neðansjávar lengur en 2 klst.
Öndun og blástur
Menn anda um 15 sinnum á mínútu en hvalir einungis þrisvar á mínútu í hvíld. Þeir halda andanum lengur og nýta súrefni mjög vel eða um 90% úr hverjum andardrætti, landspendýr nýta einungis 4% til 20%. Hvalir koma upp á yfirborðið eftir djúpköfun til að draga andann þrisvar til fimm sinnum í röð. Heitur andardráttur þeirra þéttist þegar hann kemur út í andrúmsloftið og myndar gufustróka sem kallast blástur. Hæð og lögun blásturs skíðishvala er einkennandi og má nota til að greina milli tegunda.
Sund
Hvalirnir knýja sig áfram með sporðinum sem þeir hreyfa upp og niður með sterkum vöðvum sem eru rétt framan við sporðblöðkuna. Hreyfingin nær til alls neðrihluta líkamans. Lögun sporðblöðkunnar dregur úr mótstöðu vatns og stuðlar að lyftingu í uppsveiflu.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









