Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Skynfæri

Sömu skynfæri og menn 

Hvalir hafa öll sömu skynfæri og landspendýr að lyktarskyni frátöldu. Á tungunni eru bragðlaukar sem mögulega greina bragð fæðu en nýtast einnig til að skynja umhverfið og greina hvaða efni eru í sjónum. Húð hvala er um 80% vatn og er mjög næm fyrir snertingu, einkum í kringum blástursopið.

Bergmálsmiðun  

Hvalir nota bergmálsmiðun til að átta sig á umhverfinu og rata í sjónum. Bergmálsmiðun byggist á heyrn hvalanna og hljóðum sem þeir gefa frá sér, þeir nema bergmálið og senda þannig upplýsingar til sjálfra sín. Bergmálsmiðun er notuð til að rata, veiða, eiga samskipti og finna aðra hvali í óravíddum hafsins. Við bergmálsmiðun senda hvalirnir frá sér hljóðbylgjur eða smelli og hlusta eftir bergmáli sem endurkastast frá umhverfinu, heili þeirra greinir bergmálið og les úr því mikilvægar upplýsingar. Tíminn sem líður frá því að hvalurinn gefur frá sér hljóð og þar til hvalurinn nemur bergmálið segir til um hversu fjarri viðkomandi hlutur er.

echolocation

Hljóð hvala 

Hljóðin eru mjög mismunandi að eðli, tíðni og styrk. Smellir og blístur höfrunga eru notaðir til samskipta innan hópsins og eru einkennandi fyrir tegundir og jafnvel einstaklinga. Búrhvalir gefa frá sér hljóðmynstur, sem kölluð eru "coda" eða kódar og háhyrningar hafa mismunandi mállýskur sem greina að fjölskylduhópa.


Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.

31. Mars 2011

Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku

Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.

26. Febrúar 2011

Verðskrá ársins 2011

Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:

Fullorðnir: 1.250 kr.

Börn (6-14 ára): 500 kr.

Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.

Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré