Þróun
Uppruni hvala
Talið er að hvalir hafi þróast frá útdauðum hópi landspendýra sem gengu undir nafninu "Mesonyx," þau eru einnig talin forfeður dádýra, kameldýra, svína, kúa og flóðhesta. Líkamshlultföll "Mesonyx" voru svipuð og hjá úlfum, þetta voru leggjalangar skepnur sem gengu á fingrum og tám.
Aðlögun að lífi í vatni
Fyrstu hvalirnir komu fram fyrir um 50 milljónum ára, síðan hefur fjöldi tegunda þróast og aðlagast lífi í vatni enn frekar. Búkur þeirra er straumlínulagaður með áberandi höfuðkúpu og fremur framstæða kjálka. Framlimirnir ummynduðust í árarlaga bægsli en inni í þeim er enn að finna fingur forfeðranna. Nasaholurnar færðust smátt og smátt upp á höfuðið og ytri eyru hurfu.
Tegundir og ættbálkar
Nú eru um 80 tegundir þekktar, þær skiptast í tvo undirættbálka: tannhvali og skíðishvali. Hvalirnir eiga sameiginlegan forföður en ekki hefur tekist að tímasetja hvenær skipting í ættbálka átti sér stað.
Fréttir
13. Nóvember 2009
Verk í vinnslu "SKROKKAR" Sláturhúsið snýr aftur í Hvalasafnið
14. Október 2009
Verðskrá ársins 2010
Fullorðnir: 1.000 kr.
Börn (6 - 14 ára) : 450 kr
Aldraðir frá 65 ára: 800 kr
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 800 kr., börn 350 kr.
24. September 2009
Aukaopnun í október
Hvalasafnið á Húsavík verður opið kl. 10:00 til 14:00 alla daga til 20. október 2009.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









