Andarnefja
Hyperoodon ampullatus
Andarnefja |
|
|
Lengd |
7- 9 m |
|
Þyngd |
3,5 -5,5 t |
|
Blástur |
stuttur og hringlaga |
|
Öndun |
15-70 mín |
|
Dýpi |
1000 m |
|
Fæða |
Smokkfiskur, lítillega annar fiskur |
|
Hámarksaldur |
kýr 27 ár / tarfar 37 ár |
|
Staða stofns |
ekki útrýmingarhættu |
Helstu einkenni
Andarnefjur eru af svínhvalaætt og stærstar þeirra ættar, þær eru jafnframt næststærstar tannhvala í Norður-Atlantshafi. Búkur er sívalur, dökkur að ofan, allt frá svörtu og gráu yfir í súkkulaðibrúnt, en ljós á kvið. Megineinkenni Andarnefjunnar er höfuðlagið, ennið er hátt, og stækkar með aldrinum meira á karldýrum en kvendýrum. Á fullorðnum karldýrum er ennið oft hvítt og flatt en kúptara og grátt á kvendýrum, trýnið er lítið en áberandi og framstætt. Hornið er allt að 30 cm hátt staðsett aftarlega á baki um 2/3 af lengd frá trýni að sporði. Bægslin eru stutt og ávöl, jaðar sporðblöðkunnar er samfelldur. Fullorðin karldýr hafa tvær tennur fremst á neðrikjálka, kvendýrin eru tannlaus. Talið er að tegundir sem ekki hafa tennur sem gagnast þeim til átu gleypi fæðuna með því að sjúga hana ofaní sig.
Hegðun
Andarnefjur eru djúpsjávarhvalir og halda sig mest á úthafinu á yfir 1000 m dýpi. Dýr sem flækjast nærri ströndum lenda oft í vandræðum og eru andarnefjur meðal þeirra hvala sem oftast finnast reknar á fjörur við Ísland. Eins og búrhvalir geta Andarnefjur kafað á mikið dýpi í fæðuleit og geta verið í kafi allt að tvær klukkustundir. Yfirleitt eru andarnefjur í litlum hópum tvö til fjögur dýr saman. Andarnefjur geta verið forvitnar og nýttu veiðimenn sér það og þá staðreynd að andarnefjur yfirgefa ekki særðan félaga, særð dýr voru skilin eftir í sjónum til að laða að önnur dýr.
Veiðar og stofnstærð
Á sumum svæðum gæti stofninn hafa minnkað vegna veiða en andarnefjur voru veiddar vegna lýsis og hvalrafs sem er að finna í höfði þeirra eins og búrhvala. Veiðar voru stundaðar í miklum mæli á árunum 1890-1920, eftir það dró úr veiði. Tegundin hefur verið vernduð í meira en 25 ár. Norðmenn voru stórtækastir í veiðinn en einnig stunduðu Kanadamenn og Færeyingar skipulagðar veiðar. Áætluð stofnstærð í Norður-Atlantshafi er 50 - 100 þúsund dýr.
Meira um Andarnefjur á Wikipedia, Íslandsvefnum og á hvalavefnum
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









