Háhyrningur
Orcinus orca
Háhyrningur |
|
|
Lengd |
8,5 m |
|
Þyngd |
5-6 t |
|
Blástur |
1-3 m |
|
Öndun |
2-4 mín |
|
Dýpi |
30 m |
|
Fæða |
fiskur, sjávarspendýr, hreifdýr, smokkfiskur |
|
Hámarksaldur |
Tarfar 60 ár, kýr 90 ár |
|
Staða stofns |
Háð verndun |
Helstu einkenni
Háhyrningar eru stærsta tegundin af höfrungaætt. Skrokkurinn er gildvaxinn með sérkennandi og vel afmarkað svart-hvítt litamynstur og gráan söðulflekk aftan við hornið. Höfuðið er stórt og keilulaga en trýnið stutt og illa afmarkað frá enni. Hornið, sem tegundin dregur nafn sitt af, er á miðju baki, áberandi og mjög hátt (allt að 1,8 m á törfum) en mismunandi að lögun milli kynja og einstaklinga. Á kvendýrum og ungdýrum er hornið aftursveigt en upprétt og hvasst á fullorðnum körlum. Bægslin eru stór, breið og ávöl. Mismunandi lögun hornsins og söðulflekks eru grundvöllur greiningar milli einstaklinga. Tennurnar eru stórar og sterkbyggðar 20 til 28 í hvorum góm.
Hegðun og fæðuval
Háhyrningar synda hratt, allt að 50 km/klst. Þeir eru fjörugir í vatnsborðinu og er algengt að þeir stökkvi, slái bægslum í yfirborðið eða reki hausinn upp úr vatninu. Háhyrningar eru mjög félagslyndir og lifa í stöðugum fjölskylduhópum. Þeir eru þekktir fyrir vel skipulagðar veiðiaðferðir og sérstakar mállýskur innan hjarða. Þekkt eru tvö meginafbrigði háhyrninga, svokallað flakkaraafbrigði og staðbundið afbrigði, nokkur munur er á hegðun þessara afbrigða og fæðuvali. Flakkaraafbrigðið er sérhæft í veiðum á spendýrum og fuglum en staðbundna afbrigðið lifir að mestu á fiski. Almennt aðlagast háhyrningar mjög vel aðstæðum og er munur á fæðuvali þeirra og hegðun milli svæða. Fæðuvalið er fjölbreytt og eru þeir eina hvalategundin sem nærist að talsverðu leyti á öðrum sjávarspendýrum. Háhyrningar eru fremstu rándýr hafsins og oft nefndir "killer whale" eða drápshvalur á ensku.
Hvalir í haldi Keikó
Fáar hvalategundir hafa verið rannsakaðar jafn mikið og háhyrningar bæði úti í náttúrunni og dýr í haldi sem auðvelt er að fylgjast með í lengri tíma. Umræður um hvort réttlætanlegt sé að halda lifandi sjávarspendýrum í haldi náðu hámarki með Keiko, háhyrningnum í Free Willy bíómyndunum. Aumkunarvert ástand hans leiddi til mikils þrýstings á að honum yrði sleppt og aukinnar vitundar almennings um aðstæður sjávarspendýra í dýragörðum.
Útbreiðsla og far
Háhyrningar eru taldir útbreiddastir sjávarspendýra og umhverfisaðstæður svo sem sjávarhiti eða dýpi takmarka ekki búsvæði þeirra. Far þeirra virðist tengjast þeirra eftirlætis æti og mestur fjöldi er yfirleitt á norðlægari slóðum.
Veiðar og stofnstærð
Háhyrningar hafa ekki verið veiddir jafn mikið og aðrar hvalategundir en oft fangaðir lifandi til sýnis í dýragörðum. Á árunum 1976 - 1989 voru 63 háhyrningar veiddir lifandi við Ísland, 52 íslenskir háhyrningar voru fluttir út til sædýrasafna í Evrópu, Ameríku og Japan. Það sem helst ógnar háhyrningum í dag er skipaumferð, efnamengun og minnkandi fæðuframboð. Heildarstofnstærð er óþekkt en áætlað er að um 13.000 dýr séu í Norðaustur-Atlantshafi, þar af um 5500 dýr við Ísland.
Meira um háhyrninga á Wikipedia, Íslandsvefnum og hvalavefnum
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









