Hnísa
Phocoena phocoena
Hnísa |
|
|
Lengd |
kýr 1,6 m/tarfar 1,5 m |
|
Þyngd |
kýr 77 kg/tarfar 52 kg |
|
Blástur |
Lítt áberandi |
|
Öndun |
1 - 6 mín |
|
Dýpi |
kafar grunnt |
|
Fæða |
fiskur, smokkfiskur og smærri hryggleysingjar |
|
Hámarksaldur |
6-20 ár, sjaldan eldri en 10 ár |
|
Staða stofns |
viðkvæm |
Helstu einkenni
Hnísan er minnsti hvalurinn við Ísland og meðal minnstu hvala í heiminum. Skrokkurinn er fremur kubbslegur og ummál mikið miðað við lengd. Bak, sporður og bægsli eru dökkgrá en kviður ljós og teygir ljósi liturinn sig upp á síður. Dökk rák liggur frá bægsli að auga. Hornið er meðalstórt og þríhyrningslaga staðsett á miðju baki. Bægslin eru smá og ávöl, sporðblaðkan er sveigð og greinileg rauf í hana miðja. Tannapör í hvorum góm, efri og neðri, eru 19 til 28.
Hegðun
Hnísur eru hlédrægar og laðast ekki að bátum eins og höfrungar gera gjarnan. Þær stinga höfðinu rétt upp fyrir hafflötinn til að anda en stökkva ekki. Oftast eru hnísur einar á ferð eða í pörum, fyrir kemur að þær sjást í litlum hópum, allt að sex dýr í einu.
Veiðar og stofnstærð
Þar sem hnísur halda sig mest við strendur eru þær auðveld bráð og hafa verið veiddar í aldaraðir bæði skutlaðar og veiddar í grófriðin net, hnísur eru veiddar til manneldis við Grænland. Þó hnísur séu enn algengar við Ísland hefur þeim fækkað nokkuð. Hnísu stafar helst hætta af að flækjast í fiskinet, eyðileggingu búsvæða og mikilli skipaumferð. Stofnstærð í Norður Atlantshafi er áætluð um hálf milljón dýra.
Meira um Hnísu á Wikipedia, Íslandsvefnum og hvalavefnum.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









