Hrefna
Balaenoptera acutorostrata
Hrefna |
|
|
Lengd |
7-10 m |
|
Þyngd |
kýr 7 t /tarfar 5,7 t |
|
Blástur |
mjög ógreinilegur |
|
Öndun |
5-20 mín |
|
Dýpi |
50-100 m |
|
Fæða |
ljósáta, smákrabbadýr, svifdýr og fiskur |
|
Hámarksaldur |
um 50 ár |
|
Staða stofns |
stofni er ógnað |
Helstu einkenni
Hrefnan er minnst reiðarhvala, skrokkur hennar er rennilegur en fremur gildvaxinn af reiðarhval. Svört eða dökk grá á baki en hvítleit á kvið. Höfuðið er frammjótt og eftir því endilöngu er hryggur eða kjölur. Bægslin eru mjóslegin og enda í oddi, eitt helsta einkenni norræna hrefna er áberandi hvíta þverrönd á bægslunum en bægsli hrefna á suðurhveli eru að jafnaði alsvört. Horn hrefnunnar er aftan við mitt bak, frekar stórt og aftursveigt, af því má þekkja einstaklinga.
Hegðun
Tegundin er þekkt fyrir forvitni og nálgast báta og skip óhikað, veltir sér í sjónum í kringum þá og stingur höfðinu upp til að skoða. Hrefnur sveigja líkamann fyrir köfun en lyfta ekki sporðinum, þær eiga það til að koma úr kafi og stökkva upp úr sjónum, þurrka sig sem kallað er. Hrefnur eru oftast einfarar eða halda sig í litlum hópum, stórar vöður sjást þó á góðum átusvæðum.
Far og fæðuöflun
Hrefnan er flökkuhvalur eða farhvalur og heldur sig jafna í hlýsævi á vetrum en ver sumrunum á norðlægari slóðum í góðu æti.
Veiðar og stofnstærð
Á fyrri öldum var hrefnan talin of lítil til að það borgaði sig að veiða hana en frá um 1920 hefur hún verið aðalviðfang veiða í atvinnuskyni. Hrefnan virðist hafa mikla aðlögunarhæfni og er eina tegundin þar sem stofninn hefur stækkað þrátt fyrir verulega veiði og önnur inngrip. Heildarstofnstærð á heimsvísu er áætluð um 800.000 dýr þar af er talið að um 200.000 séu í Norður-Atlantshafi.
Meira um hrefnu á Wikipedia, Íslandsvefnum og hvalavefnum.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









