Um hvalasafnið
Hlutverk
Hvalasafnið á Húsavík er sjálfseignarstofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni. Safnið var stofnað árið 1997. Meginmarkmið þess er að miðla fræðslu og upplýsingum um hvali og búsvæði þeirra. Með fræðslu og þekkingaröflun um hvali og lífríki þeirra eykur Hvalasafnið á fræðslugildi hvalaskoðunarferða sem farnar eru frá Húsavík og víðar.
Stutt söguágrip
Starfsemi Hvalasafnsins sem áður hét Hvalamiðstöðin hófst sem tilraun með lítilli sýningu um hvali. Einungis þremur árum eftir stofnun hafði sýningin náð miklum vinsældum og gestafjöldinn fór fram úr björtustu vonum. Safnið hafði sannað tilverurétt sinn og nauðsynlegt var að það kæmist í eigin húsnæði sem hentaði starfsemi þess. Gamla sláturhús Kaupfélags Þingeyinga varð fyrir valinu og er nú einn af vinsælustu ferðamannastöðum á Norðurlandi. Frumkvöðull að stofnun safnsins og forstöðumaður þess í 11 ár er Ásbjörn Björgvinsson, án hans vinnu væri safnið ekki það sem það er í dag. Húsavík og hvalaskoðun á Íslandi eiga Ásbirni mikið að þakka.
Sýningin
Í 1.600 m2 sýningarrými er að finna beinagrindur af mörgum tegundum hvala og heillandi upplýsingar um þessi stærstu dýr jarðar. Yfir 200.000 manns hafa heimsótt Hvalasafnið frá stofnun þess og við hlökkum til að taka á móti enn fleiri.
Fréttir
13. Nóvember 2009
Verk í vinnslu "SKROKKAR" Sláturhúsið snýr aftur í Hvalasafnið
14. Október 2009
Verðskrá ársins 2010
Fullorðnir: 1.000 kr.
Börn (6 - 14 ára) : 450 kr
Aldraðir frá 65 ára: 800 kr
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 800 kr., börn 350 kr.
24. September 2009
Aukaopnun í október
Hvalasafnið á Húsavík verður opið kl. 10:00 til 14:00 alla daga til 20. október 2009.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









