Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Fréttir

13. Nóvember 2009

Verk í vinnslu "SKROKKAR" Sláturhúsið snýr aftur í Hvalasafnið

Sunnudaginn 22. nóvember kl. 13-15 verður opið hús í Hvalasafninu á Húsavík.

 

14. Október 2009

Verðskrá ársins 2010

Verðskrá ársins 2010 er eftirfarandi:

Fullorðnir:  1.000 kr.
Börn (6 - 14 ára) :  450 kr
Aldraðir frá 65 ára: 800 kr
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 800 kr., börn 350 kr.

24. September 2009

Aukaopnun í október

Hvalasafnið á Húsavík verður opið kl. 10:00 til 14:00 alla daga til 20. október 2009.

2. September 2009

Metaðsókn að Hvalasafninu í ágúst

Aðsókn í nýliðnum ágústmánuði var meiri en nokkru sinni í ágúst frá opnun safnsins 1997.

Gestir hvalasafnsins í ágúst 2008 voru 5.900 og í ágúst 2009 8.850 og er þetta um 50% aukning milli ára

1. September 2009

Hnúfubakur á flóanum og sólin á himninum

Nú birtir til eftir rigingu síðustu daga, sólin brýst fram úr skýjunum og skín á hnúfubak sem leikur sér á flóanum.

1. Ágúst 2009

Mjög góð aðsókn að Hvalasafninu

Það sem af er sumri hafa ríflega 30% fleiri gestir heimsótt Hvalasafnið á Húsavík en á sama tíma í fyrra.

28. Júlí 2009

“The Giants of Húsavík” á Hvalasafninu á Húsavík

 

Laugardaginn 1. Ágúst 2009 kl. 17:00

The Húsavík Project

Hollenskir vinir Hvalasafnsins og Húsavíkur votta safninu og bænum virðingu sína. Laugardaginn 1. Ágúst kl. 17:00 kynnir hollenski rithöfundurinn og ljóðskáldið Paul Sterk verk sín á hvalasafninu á Húsavík. Um leið afhendir hann safninu formlega nýjustu plötu hollensku hljómsveitarinnar "The Giants of Húsavík."

26. Júlí 2009

Langreyðin flutt til Húsavíkur

Langreyðin sem strandaði við Vík í Mýrdal í nóvember 2008 (sjá fréttir frá því í desember 2008) var flutt til Húsavíkur með góðum árangri. Beinagrindinni var náð úr hræinu og flutt til Húsavíkur um seinustu helgi. Atli Már Guðjónsson, eigandi byggingarfyrirtækis í Vík, aðstoðaðið safnið frá byrjun þessa verkefnis, við að gera það ómögulega mögulegt.

10. Júlí 2009

Hákarl í Skjálfandaflóa

Fyrir frekari upplýsingar um ferðina og hákarlana, sem og nokkrar myndir, endilega kíkið á blog Norðursiglingar: www.northsailing.is/whale-watching/whale-blog-&-diary/nr/2220/

6. Júlí 2009

Steypireyðarnar komnar aftur

Föstudaginn 3. júlí sáust aftur steypireyðar á Skjálfanda eftir að þær höfðu haldið sig fjarri í um 10 daga.

30. Júní 2009

61. árlegi fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins í Portúgal, 22. – 26. júní 2009

Vísindaráðið fór yfir ástand hvalastofnana og kom með nýjar upplýsingar um fjölmargar tegundir. Ráðið sýndi fram á aukinn fjölda hnúfubaka, steypireyða og sléttbaka á suðurhveli jarðar. Upplýsingar um aðrar tegundir eru enn takmarkaðar. Auk þessa hefur ráðið séð fyrir ráðgjöf varðandi veiði frumbyggja og koma í veg fyrir neikvæð áhrif á viðeigandi hvalastofna.

25. Júní 2009

Ice Climate Education Camp 2009 í Hvalasafninu

 Námsbúðir um veðurfar á heimskautasvæðum og hlýnun jarðar, The Ice Climate Education Camp 2009 (I.C.E.) eru nú haldnar annað árið í röð á Húsavík og í Hvalasafninu. Skipuleggjandi búðanna er Arved Fuchs, þýskur landkönnuður og heimskautafari. Nemar frá öllum heimshornum tóku þátt í samkeppni um þátttöku í búðunum. Valdir voru tíu nemar sem boðið var til vinnu- og fræðslubúða um hlýnun jarðar og möguleg áhrif hennar á norðurheimskautssvæðið. Þátttakendur í ár eru frá sjö löndum.

22. Júní 2009

Frá sláturhúsi til hvalasafns

Ný sýning um sögu hvalasafnsins og breytingu gamla sláturhúss KÞ í hvalasafn verður opnuð n.k. miðvikudag, 24. júní kl. 18:00. Opið hús, allir velkomnir. Sérstakur gestur verður Ásbjörn Björgvinsson, stofnandi og forstöðumaður safnsins til sumarsins 2008. Einnig fær hann viðurkenningu fyrir störf sín í seinustu 11 ár.

14. Júní 2009

Kátir hnúfubakar á flóanum

Hnúfubakarnir í flóanum buðu Húsvíkingum og gestum þeirra upp á skrautsýningu í gærkvöldi með blæstri og bægslagangi rétt fyrir utan Bökugarðinn.

8. Júní 2009

Fyrstu steypireyðar sumarsins komnar á Skjálfanda

Tvær steypireyðar sáust í kvöldferðum hvalaskoðunarbáta frá Húsavík í gærkvöldi.

4. Júní 2009

Heimasíða hvalasafnsins á Íslensku

Heimasíða hvalasafnsins er nú á Íslensku. Hér er að finna margvíslegan fróðleik um hvali og tengdan hvölum auk upplýsinga um safnið. Við vonum að landinn taki þessarri nýju síðu vel og nýti sér til gagns og ánægju.

29. Maí 2009

Kórsöngur í hvalasafninu

Kór Öldutúnsskóla heimsótti hvalasafnið í morgun og tók lagið.


Fréttir

13. Nóvember 2009

Verk í vinnslu "SKROKKAR" Sláturhúsið snýr aftur í Hvalasafnið

Sunnudaginn 22. nóvember kl. 13-15 verður opið hús í Hvalasafninu á Húsavík.

 

14. Október 2009

Verðskrá ársins 2010

Verðskrá ársins 2010 er eftirfarandi:

Fullorðnir:  1.000 kr.
Börn (6 - 14 ára) :  450 kr
Aldraðir frá 65 ára: 800 kr
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 800 kr., börn 350 kr.

24. September 2009

Aukaopnun í október

Hvalasafnið á Húsavík verður opið kl. 10:00 til 14:00 alla daga til 20. október 2009.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré