Fréttir
29. Maí 2009
Kórsöngur í hvalasafninu
Hvalasafnið fékk góða gesti í morgun. Tuttugu og átta meðlimir kórs Öldutúnsskóla í Hafnarfirði eimsóttu safnið, fengu smá fræðslu og skoðuðu sig um. Þessi glæsilegi og prúði hópur þakkaði vel fyrir sig með því að taka lagið í hvalveiðisöguherberginu. Söngvararnir, Brynhildur stjórnandi og foreldrar gerðu góðan róm að hljómburðinum á safninu. Við þökkum þessum glæsilega hópi fyrir komuna og minnum á sameiginlega tónleika þeirra með kór Borgarhólsskóla í sal Borgarhólsskóla kl. 19:30 í kvöld.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









