Fréttir
30. Júní 2009
61. árlegi fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins í Portúgal, 22. – 26. júní 2009
Vísindaráðið fór yfir ástand hvalastofnana og kom með nýjar upplýsingar um fjölmargar tegundir. Ráðið sýndi fram á aukinn fjölda hnúfubaka, steypireyða og sléttbaka á suðurhveli jarðar. Upplýsingar um aðrar tegundir eru enn takmarkaðar. Auk þessa hefur ráðið séð fyrir ráðgjöf varðandi veiði frumbyggja og koma í veg fyrir neikvæð áhrif á viðeigandi hvalastofna.
Tíminn sem gefinn var tilnefndum vinnuhóp var lengdur til næsta ár. Verkefni þessa vinnuhóps er að finna sameiginlega niðurstöðu fyrir helstu vandamál Alþjóða hvalveiðiráðsins og leita eftir málamiðlunum milli andstæðra hópa. Ísland samþykkti að vera í lykil hlutverki og vera tengiliður milli hópana.
Alþjóða hvalveiðiráðið hefur einnig samþykkt að skipa nefnd til að mynda stjórnunaráætlun fyrir hvalaskoðanir til þess að lágmarka neikvæð áhrif á hvali.
Nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi síðum:
http://www.iwcoffice.org/meetings/meeting2009.htm
http://www.icelandreview.com/icelandreview/search/news/Default.asp?ew_0_a_id=335957
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









