Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Fréttir

28. Júlí 2009

“The Giants of Húsavík” á Hvalasafninu á Húsavík

          The Giants of Húsavík album 

Paul Sterk er hollenskur rithöfundur og dálkahöfundur fyrir Bospop, alþjóðlega rokk og pott tónlistarhátíð í Hollandi. Laugardaginn 1. Ágúst verður hann á Hvalasafninu á Húsavík og segir frá hollensku hljómsveitinni "The Giants of Húsavík" og kynnir nýjasta geisladiskinn þeirra. Hvar í heiminum er betur viðeigandi að kynna geisladisk hljómsveitar sem kallar sig "The Giants of Húsavík?" Öllum er velkomið að taka þátt.

Skáldsaga Pauls Sterk's "Via Stars and Mermaids" kom út í desember 2009 (því miður fæst hún aðeins á Hollensku sem "Via sterren en zeemeerminnen.") Ef til vill er réttara að kalla söguna rokk og ról ferðasögu því hún er full af tónlist. Sagan fjallar um mann sem leitar sannleikans og svara við spurningum lífsins. Þetta er líka saga um tilviljanir. Í leit sinni að svörum ferðast þessi maður frá Hollandi til Bandaríkjanna. Hann minnist laganna sem eru mikilvæg í lífi hans. Á leið sinni heim kemur aðal söguhetjan við á Íslandi. Sagan fær farsælan endi undir íslenskum himni. Í bókinni er einnig að finna minningabrot frá Íslandi og Húsavík. Hollenskir fjölmiðlar sögðu um skáldsögu Pauls Sterk: "yndisleg!", "frumleg og nútímaleg skrif" og "óvenjuleg frumraun."

"Via Stars and Mermaids" er rokk og ról ferðasaga um tilviljun. En það eru fleiri tilviljanir tengdar Íslandi og tónlist. Þegar bókin var nýkomin út heyrði Paul Sterk af rokkbandi sem kallar sig "The Giants of Húsavík."

The Giants of Húsavík
 

The Giants of Húsavík er verkefni tveggja tónlistarmanna, söngvarans Maurits Westerik í hollenska bandinu GEM, og Jason Kohnen, betur þekktur sem break core guru Bong-Ra. Fyrsta plata "The Giants of Húsavík" var tekin upp árið 2008 í Sandgerði. Fossarnir, hverirnir, opinnhiminn, tröll og hvalir veittu þeim innblástur. Hvorki Mauritx né Jason hafa komið til Húsavíkur. Platan þeirra fékk mjög góða dóma í hollenskum tónlistartímaritum. Í maí sl. spiluðu The Giants of Húsavík á tónleikum í Hollandi með tónlistarmönnum með íslenskar rætur, Valgeir Sigurðssyni og Ben Frost.

Paul Sterk ræddi við hljómsveitina um nafnið þeirra og tónlistina, rokk - skáldsöguna sína og um Húsavík. Hugmyndin um að kynna plötuna á Húsavík kviknaði. Kynningin er táknrænn virðingarvottur við alla íbúa Húsavíkur.

Paul Sterk og hljómsveitin hafa áhuga á að gera meira fyrir Húsavík í framtíðinni. Þeir hafa þegar gefið verkefninu nafn: "The Húsavík Project." Hugmyndir... Paul mun skrifa um verkefnið og "The Giants of Húsavík" vilja spila á Húsavík. Það væri áhugavert að fá húsvíska listamenn og tónlistarmenn til að taka þátt í verkefninu. Í verkefninu er pláss fyrir allskonar hugmyndir, allt er mögulegt.

Vonandi verður framhald á "The Húsavík Project" eftir kynninguna á Hvalasafninu.

Paul Sterk

Novel: Via Sterren en Zeemeerminnen (Via Stars and Mermaids, 2008. Útgefandi: TIC / TIC Publishers, Maastricht, The Netherlands)

Dálkahöfundur fyrir Bospop, tónlistarhátíð í Weert, Hollandi. Meðal þekktra tónlistarmanna sem hafa spilað á  Bospop eru Neil Young, ZZ Top, Sting, Santana, Doors, Roxy Music, Simply Red, Toto, UB40, Status Quo, Bryan Adams, Joe Cocker, John Fogerty og margir aðrir.

Vefsíður: http://www.paulsterk.nl/ og http://www.bospop.nl/

 

The Giants of Húsavík

IN A CABIN WITH: http://www.inacabinwith.com/site/ til að hlaða niður og kaupa plötuna The Giants of Húsavík. Eða til að nálgast blogg The Giants of Húsavík um upptökur á fyrstu plötunni þeirra í Sandgerði.

Music: http://www.myspace.com/thegiantsofhusavik

 


Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.

31. Mars 2011

Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku

Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.

26. Febrúar 2011

Verðskrá ársins 2011

Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:

Fullorðnir: 1.250 kr.

Börn (6-14 ára): 500 kr.

Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.

Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré