Fréttir
1. Ágúst 2009
Mjög góð aðsókn að Hvalasafninu
Það sem af er sumri hafa um 30% fleiri gestir heimsótt Hvalasafnið á Húsavík en á sama tíma í fyrra.
Heildarfjöldi gesta á þessu ári, til og með 31. júlí, er 16.004 manns. Til samanburðar má nefna að á sama tíma fyrir ári síðan var fjöldinn 12.449.
Gestir í júní í ár voru 3.967 en í fyrra komu aðeins 2.938 manns, sem sýnir 35% aukningu á milli ára. Tölur í júlí sýna 7.720 manns árið 2008 en í ár komu alls 9.500 manns inn á safnið, sem er 23% aukning.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









