Fréttir
24. September 2009
Aukaopnun í október
Aðsókn að Hvalasafninu á Húsavík hefur aldrei verið meiri en í sumar. Enn er talsverð umferð ferðamanna á Húsavík og því hefur verið ákveðið að framlengja tímabil fastrar opnunar til 20. október en þá lýkur hvalaskoðunartímabili ársins.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









