Fréttir
13. Nóvember 2009
Verk í vinnslu "SKROKKAR" Sláturhúsið snýr aftur í Hvalasafnið
Dansandi skrokkar í Hvalasafninu
Listakonurnar Anna Richardsdóttir og Sigurbjörg Eiðsdóttir vinna nú að nýstárlegri sýningu í Hvalasafninu á Húsavík.
Verkið nefnist "Skrokkar" og er frumsamið og verða aðstandendur verksins með opið hús í safninu sunnudaginn 22.nóvember n.k. þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að skoða verkið í vinnslu, spjalla við listakonurnar að störfum og sjá brot úr flutningi þess.
Þráður verksins er að hluta til sóttur í sögu hússins, en það var á sínum tíma byggt sem sláturhús og var það aðalstarfsemin í húsinu til ársins 1972.
Innan ramma verksins er því unnið með með líf og dauða, ást og ótta og hin ýmsu störf úr sláturhúsinu, sem verða kveikjur að þeim tangó sem stiginn er af persónunum er koma fram í sýningunni.
Anna Richardsdóttir , sem hefur um árabil flutt verk sín í dansspuna, sér um flutning á dansgjörningnum en Sigurbjörg Eiðsdóttir sér um innsetningar í rými safnsins.
Safnið verður opið frá kl 13:00 til 15:00 og flutt verður brot úr verkinu kl. 14:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Í tilefni dagsins verður Gamli baukur á Húsavík með vöfflur og drykki til sölu.
Stefnt er að því að sýna verkið í heild sinni á vormánuðum 2010.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









