Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Fréttir

21. Desember 2009

Skipasmíði og hvalaskoðun

 Nú er unnið að endurgerð hvalaskoðunarherbergisins, herbergið er endurgert frá grunni. Gestir framtíðarinnar munu ganga um borð í bát þegar þeir skoða herbergið en hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling gefur eftirlíkingu af hádekki Knarrarins, fyrsta hvalaskoðunarbáts fyrirtækisins. Veggir herbergisins  verða klæddir panorama-mynd af Skjálfandaflóa svo tilfinningin fyrir hvalaskoðunarferð verður raunveruleg. Listasmiðurinn Eggert Jóhannsson smíðar framdekk Knarrarins með dyggri aðstoð Antons Harðarsonar. Hér má sjá myndir frá framgangi verksins, áætlað er að sýningin verði fullbúin í apríl eða maí 2010.

knörr

knorr2

knorr3

knorr4

knorr5

knorr6

 


Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.

31. Mars 2011

Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku

Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.

26. Febrúar 2011

Verðskrá ársins 2011

Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:

Fullorðnir: 1.250 kr.

Börn (6-14 ára): 500 kr.

Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.

Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré