Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

 hvalaskóli6

Það hefur verið mikið að gera hjá okkur hér í Hvalasafninu í sumar þrátt fyrir langan kuldakafla í júní og byrjun júlí. Aðsóknin var t.d. mun meiri í júní en í fyrra og ágúst hefur verið góður.

 

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu. Að venju tóku 5. bekkingar nokkurra grunnskóla á svæðinu þátt í þriggja daga námskeiði í maí þar sem m.a. var farið í bátsferð um flóann og gerðar athuganir á hvölunum og umhverfir þeirra. Einnig var boðið upp á stutt námskeið fyrir börn í tengslum við norrænu strandmenningarhátíðina Sail Húsavík og Mærudaga. Það er alltaf að færast í aukana að grunnskólar, framhaldsskólar og háskólar og sækist eftir að nýta sér Hvalasafnið og lífríki Skjálfandaflóa í kennslunni. Hlutverk Hvalaskólans er að mæta þessari þörf með því að bjóða upp á metnaðarfull námsverkefni fyrir öll skólastig. Námshópar erlendis frá voru sérstaklega áberandi í sumar og má þar nefna fjölmennan hóp úr tveimur alþjóðlegum ungmennabúðum: Arved Fuch og Ice Climate Education. Rannsóknarsetur HÍ á Húsavík er, ásamt hvalaskoðunarfyrirtækjunum á Húsavík, mikilvægur þátttakandi í starfsemi Hvalaskólans og stóð forstöðumaður þess, Marianne Helene Rasmussen, fyrir 10 daga námskeiði fyrir alþjóðlegan hóp nemenda við HÍ (Marine Mammal Field Course).

 

Við höfum átt yndislegt hvalasumar hér í flóanum. Nánast á hverjum degi sjást hnúfubakar, hrefnur, hnísur og  höfrungar. Steypireyðarnar sem yfirleitt sjást aðeins í tvær vikur yfir sumarið voru svo góðar að stoppa hjá okkur í tvo mánuði. Einnig sáust nokkrum sinnum háhyrningur, langreyðar og grindhvalir en það eru sjaldséðir gestir í flóanum. Húsavík hefur enn eitt sumarið sannað sig sem einn af bestu stöðum í heiminum til að skoða og læra um hvali.

 


Fréttir

3. Apríl 2012

Tunga og Árholt í heimsókn

Það var heldur betur líflegt á hvalasafninu í morgun og í gærmorgun, en hópur leikskólabarna heimsótti safnið ásamt kennurum.

20. Mars 2012

Ferðaþjónustuaðilar í Hvalasafni

Í tilefni af því að Flugfélagið Ernir mun hefja áætlunarflug til Húsavíkur þann 15. apríl næstkomandi var ferðaþjónustuaðilum í Reykjavík boðið í dagsferð til Húsavíkur og nágrennis, þar sem ferðaþjónusta svæðisins var kynnt.

8. Mars 2012

Líf yfir vetrartímann

Eins og undanfarna vetur kemur góður hópur saman í Hvalasafninu 6 daga vikunnar og púttar á nyrsta púttvelli í heimi (svo við vitum).


OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré