Beint á leiðarkerfi vefsins
Logo

Nyrsti púttvöllur í heimi

Í samstarfi við Golfklúbb Húsavíkur rekur hvalasafnið 18 holu púttvöll utan háanna tíma.

Völlurinn er alla jafna opinn frá október og fram í apríl. Allur búnaður fyrir púttleik er til staðar á safninu. Völlurinn er öllum opinn og gjaldi fyrir púttleik er stillt í hóf. Tilvalin afþreying fyrir hópa og frábært tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér golfíþróttina.

Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér púttaðstöðuna á dagvinnutíma, hafi sambandi við Erlu í síma: 414 2802 eða netfang: erla@whalemuseum.is

Hópar og aðrir sem áhuga hafa á málinu utan hefðbundins skrifstofutíma, snúi  sér til vallarstjóra GH í síma: 845 0706 eða netfang: eingest@hotmail.com. Frekari upplýsingar um Golfklúbb Húsavíkur er að finna á www.golf.is/gh .

 

pútt

Eldri borgarar á Húsavík hafa tekið púttvellinum fagnandi og vaxandi hópur hittist daglega á Hvalasafninu kl. 13:00 púttar og spjallar.


Fréttir

16. Ágúst 2011

Hvalaskólinn vinsæll

Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.

31. Mars 2011

Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku

Hægt er að þekkja í sundur einstaklinga innan hverrar tegundar með því að beita tækni sem kallast ljósmyndagreining, þetta á sérstaklega við um hnúfubaka. Þegar þeir fara í djúpköfun sýna þeir oft sporðinn og þar sem engir tveir hnúfubakar hafa eins munstur á sporðinum er auðvelt að greina þá í sundur.

26. Febrúar 2011

Verðskrá ársins 2011

Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:

Fullorðnir: 1.250 kr.

Börn (6-14 ára): 500 kr.

Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.

Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.



OPNUNARTÍMAR

Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00

Maí til September
10:00 - 17:00

Aðrir tímar eftir samkomulagi



Whale Museum in English

Stjórnborð

Forsíða vefsins Minnka letur Stækka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré