Sjálfboðaliðar
Frá árinu 1997 hefur fjöldi sjálfboðaliða frá ýmsum löndum starfað á Hvalasafninu flestir sumarlangt.
Hlutverk sjálfboðaliða
Aðalverkefni þeirra eru leiðsögn um safnið, vinna í afgreiðslu (upplýsingagjöf, sala aðgöngumiða og minjagripa), fyrirlestrar og kynningar, þátttaka í rannsóknarstörfum, vinna að endurbótum sýningar, viðhald og ræstingar.
Ómetanlegt framlag
Vinna og framlag sjálfboðaliðanna hefur reynst afar dýrmæt og er mikils metin af safninu. Sjálfboðaliðar leggja mikið af mörkum til að viðhalda safninu. Áhugasamir geta lesið sér nánar til um sjálfboðaliðaverkefnið á ensku útgáfu heimasíðunnar.
Fréttir
16. Ágúst 2011
Hvalaskólinn vinsæll
Hvalaskólinn er orðinn fastur liður í starfsemi safnsins en það leggur mikla áherslu á að fræða börn og lengra komna nemendur um hvali og lífríkið í hafinu.
31. Mars 2011
Hnúfubakur frá Skjálfandaflóa myndaður við strendur Afríku
26. Febrúar 2011
Verðskrá ársins 2011
Verðskrá ársins 2011 er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.250 kr.
Börn (6-14 ára): 500 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 900 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 900 kr., börn 400 kr.
OPNUNARTÍMAR
Júní, Júlí og Ágúst
09:00 - 19:00
Maí til September
10:00 - 17:00
Aðrir tímar eftir samkomulagi









